157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:11]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ágætisspurningu. Sannur aðildarsinni? Ég vil sjá samning, það er mikill munur á því. Ég er vongóð um að hann gæti litið vel út vegna þess að ég treysti þessari ríkisstjórn til að fara út og gera ýtrustu kröfur fyrir Ísland. Það þýðir ekki að ég sé ekki með neina varnagla gagnvart því hvernig þessi samningur gæti litið út.

Ég vil hins vegar segja að já, ég kynnti mér gögnin í þessu herbergi og get gert grein fyrir eðli þeirra. Þau varða ekki fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu eða einhverjar samningaviðræður sem eru byrjaðar og þjófstartað af hálfu Íslands. Þau varða milliríkjasamskipti sem varða ótengd mál sem eru til meðferðar innan utanríkisráðuneytisins og hófust mörg hver í tíð fyrri ríkisstjórnar.

Varðandi það að íslenska krónan sé stöðugri en evran. Já, hún er stöðug að einhverju leyti vegna þess að það kostar að halda uppi gjaldeyrisforða hjá Seðlabankanum. Í árslok voru þetta 935 milljarðar kr. Það er eitthvað.