þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar seinna andsvar. Hv. þingmaður heyrði greinilega ekki rétt í þessu sambandi vegna þess að við vorum ekkert nákvæmlega að ræða um hvernig sú sem hér stendur ætlar að greiða atkvæði. Ég er alin upp við það að það þótti alla vega hér á árum áður hreinlega dónalegt að spyrja fólk um hvernig það ætlaði að kjósa. (Gripið fram í.)Það er nú þess vegna sem maður fer inn í kjörklefa og dregur vandlega tjaldið fyrir og kúrir sig svo yfir atkvæðaseðilinn og merkir svo enginn sjái og flýtir sér svo að brjóta saman og koma í kassa. Þetta er því bara persónulegt málefni hvers og eins sem hver og einn verður að eiga við sig þegar að því kemur og mér finnst það enn þá dálítið þannig. Ég vil nú ekki segja að hv. þingmaður sé dónalegur, ég held að það sé hún alls ekki, en þetta er samt spurning sem ég held að við eigum ekkert að vera að ganga að fólki og segja: Hvernig ætlar þú að kjósa? Þetta er bara þannig málefni. Ég vona að hv. þingmaður sé sáttur við þetta svar.