samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir andsvarið. Já, ég hefði kannski getað farið dýpra í það en varðandi Norðausturkjördæmi finnst mér áætlunin mjög afturhlaðin. Það er bara þannig og þannig hefur það verið ansi lengi þannig að eftir er tekið. Það er hins vegar rosalega erfitt í svona málaflokki eins og í uppbyggingu samgangna sem taka oft mjög langan tíma að vera með þetta frá kjörtímabili til kjörtímabils. Það var tilgangurinn með því að fara í samgönguáætlun og hafa vegi, hafnir og flugið allt saman inni í einni áætlun, til að reyna að hafa einhvern fyrirsjáanleika. Við erum alltaf að tala um fyrirsjáanleika hér. Það er punkturinn sem ég hef áhyggjur af, hvernig það hefur verið þróast þegar allt er sett svolítið á hvolf. Auðvitað er það nú þannig að mjög margt af þessu sem er í þessari áætlun var inni hjá okkur á síðasta kjörtímabili. Stærsta breytingin er náttúrlega þessi forgangsröðun á jarðgöngum, hún er stór og mikil. Það er nú kannski það helsta. En þetta er gott í bili.