157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:10]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla bara að byrja á að fá að svara almennt hvort það sé sanngjarnt að kannski færa skatt eitthvert annað, segjum bara varðandi göng úti á landi og þá gleymist kannski — ég veit að hv. þingmaður var meira að spyrja út frá innviðafélaginu en mig langar bara að koma því að að þegar um er að ræða göng sem kannski ekki margir fara um og við erum kannski að kvarta á höfuðborgarsvæðinu yfir því að við séum að borga fyrir þau, þá má ekki gleyma því að mjög oft líka er það þar sem verðmætin verða til og ef það væru ekki góðar samgöngur þangað þá væri ekki hægt að búa til þessi verðmæti. Þetta er bara einn punktur inn í þá umræðu. En þetta var svona hliðarumræða. Ég held að það sem hv. þingmaður spyr um varðandi radíusinn — það er alveg rétt og við þurfum að fá útskýringu á því, svona er þetta. Ef þau ætluðu að setja fé inn í félögin þá kemur það inn sem hlutafé og ef við erum með óarðbær verkefni verða þau ekki í C-hluta, ef ég skil hv. þingmann rétt, heldur koma þau verkefni undir A-hluta og tilheyra ríkisreikningnum, ef ég er að skilja þetta innviðafélag rétt.