157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:34]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns um að það hefði auðvitað verið betra að sjá á þessi spil fyrr í umræðunni. Ég ætla að leyfa mér að segja að það hefur ekki alveg legið ljóst fyrir nákvæmlega hvernig verði búið um fjárhag þessa svokallaða innviðafélags og á meðan við höfum kannski ekki allar þær upplýsingar, sem munu væntanlega skýrast í 2. umræðu um málið eða alla vega verði þá frekara ljósi varpað á það, þá deilir maður áhyggjum varðandi það að sjá ekki hvernig þetta muni styrkja samgönguáætlun í heild sinni. En ég ætla að leyfa mér að segja að eins og hugmyndin hljómaði alla vega í upphafi þá gat maður verið að horfa á þetta félag bara eins og PPP-félag þá hefði maður verið giska sáttur við, svo við tökum dæmi, ef þau hefðu fjármagnað önnur Hvalfjarðargöng með svipuðum hætti og Spölur gerði á sínum tíma en ég geri ekki ráð fyrir að það verði með þeim hætti eins og mér skilst á þessu frumvarpi.