157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Í nóvember 2023 var heilt samfélag á Íslandi rýmt þegar Grindvíkingar þurftu að flýja heimili sín. Það hafði áður gerst í eldgosinu í Heimaey en þetta var mikið áfall, auðvitað fyrst og fremst fyrir Grindvíkinga en líka fyrir þjóðina alla þegar um 4.000 manns þurftu að flytja annað, um 1% af þjóðinni. Við á þingi gerðum það sem í okkar valdi stóð til að hjálpa og standa með Grindvíkingum og Grindavík. Hér fór fjöldi frumvarpa í gegnum þingið í mikilli sátt allra um það hvernig best væri að bregðast við. Við fórum m.a. í það að kaupa upp fasteignir í Grindavík. Um 73 milljörðum var varið í það verkefni. Núna síðast, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, brugðumst við líka við á þingi með því að breyta kosningalögum til að tryggja að hægt væri að kjósa bæjarstjórn í Grindavík sem fengi það stóra og mikilvæga verkefni að byggja aftur upp Grindavík. Þessi bæjarstjórn hefur nú tekið til starfa og því miður eru fyrstu skilaboðin frá þessari bæjarstjórn til okkar hér á þingi og til ríkisstjórnarinnar átakanleg. Bæjarstjórn Grindavíkur harmar mjög í yfirlýsingu þær ráðstafanir sem verið er að gera. Nú er verið að ganga á rétt þeirra til að búa í húsunum sem voru jú seld Þórkötlu en þau hafa afnotarétt af. Þetta veldur því að skólahald í Grindavík er í uppnámi.

Virðulegur forseti. Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að koma með þessi mál aftur inn í þingið, ná um það pólitískri sátt og að við treystum kjörnum fulltrúum í Grindavík fyrir uppbyggingu bæjarins. Ég hvet hv. þingmenn til að fara inn á vefsíðu Grindavíkurbæjar og lesa þá yfirlýsingu sem þau hafa gefið okkur.