brottfararstöð.
Forseti. Við ræðum hér um brottfararstöð. Ísland er sem stendur eina landið innan Schengen sem hefur ekki yfir slíku úrræði að ráða. Það skapar ákveðið tómarúm og sendir neikvæð skilaboð út í samfélagið, sérstaklega til þeirra sem brjóta af sér og neita að vinna með stjórnvöldum. Við þessa stöðu sem nú er uppi getum við ekki unað. Í dag er staðan sú að aðeins þeir foreldrar sem hafa fengið synjun um vernd, eru ekki samvinnufúsir og vægari úrræði hafa ekki dugað til, eru settir í gæsluvarðhald. Börnin eru aðskilin frá foreldrum og sett í fóstur. Með tilkomu brottfararstöðvar er fjölskyldum ekki tvístrað. Úrræði fyrir fólk með börn er sérstaklega útbúið leiksvæði, bæði innan dyra og utan, og tryggður verður alger aðskilnaður við aðra. Hér er mikilvægt að árétta að brottfararstöð er lokaúrræði sem einungis er beitt til skamms tíma og ávallt verður vægari úrræðum beitt áður en til kemur að vista einstaklinga í brottfararstöð. Það þarf enginn að vera þarna.