brottfararstöð.
Herra forseti. Hér birtist eitt af áherslumálum Flokks fólksins í ríkisstjórninni. Ég vil nota hér tækifærið og þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að koma því í höfn. Þetta er mikilvægt mál til að koma hér á stjórn á landamærunum og að það verði skilvirkni í útlendingamálum. Það er óskiljanlegt að þingheimur allur skuli ekki styðja þetta mál því að ef maður hlustar á raddir í samfélaginu þá er hér um nauðsynjamál að ræða. Ég segi við þá sem bera fyrir sig að það sé verið að frelsissvipta börn að með samþykkt þessa máls er alveg ljóst að það er verið að færa börnin í betri úrræði heldur en þau sem eru nú höfð uppi. Hér er um jákvætt mál að ræða í alla staði og það er mjög auðvelt fyrir okkur í Flokki fólksins að styðja það.