samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þarf ekki langan inngang að því að svara hv. þingmanni. Ég er fullkomlega sammála honum. Þessi mál eru engan veginn tilbúin. Þau eru ekki tæk, m.a. af þeim ástæðum sem hv. þingmaður lýsti og ýmsum öðrum. Það sem við höfum séð alveg frá því að blaðamannafundurinn var haldinn til að kynna nýja samgönguáætlun með pompi og prakt er, eins og marga grunaði, held ég að megi segja, á sínum tíma, að þetta er allt einhver pótemkintjöld. Það er ekkert á bak við þetta. Það er ekkert að marka þetta. Ég veit ekki hvort hæstv. forseti man eftir yfirlýsingunum sem fylgdu í sífellu kynningu á þessari áformuðu samgönguáætlun um að hún væri söguleg vegna þess að hún væri fullfjármögnuð. Svo kemur á daginn að svo er ekki og raunar langt frá því og leitast við að réttlæta þessar yfirlýsingar um fjármögnun með vísan í áformað innviðafélag. Og þegar menn byrja að skoða það og ræða innviðafélagið kemur á daginn að það er algjörlega vanhugsað og á því ýmsir gallar, ekki bara hnökrar heldur alvarlegir gallar, sem reynist hv. þingmönnum meiri hlutans hér mjög erfitt að skýra og sem þeir virðast raunar ekki gera sér grein fyrir sjálfir hvers eðlis eru og vandræðast hið mesta með málið í hv. nefnd. En um leið er einu sinni sem oftar, eins og alltaf er gert hjá þessari hæstv. ríkisstjórn, reynt að breiða yfir málin með umbúðum og um leið fárast yfir því að hv. þingmenn vilji ræða málin. Af hverju er það svona viðkvæmt hjá hv. þingmönnum meiri hlutans og hæstv. ráðherrum að þingmenn ræði málin? Það er af því að þeir vilja ekki að innihaldið komi í ljós, frú forseti.