157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:27]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur andsvarið. Það sem ég gleymdi líka að nefna áðan hvað varðar Herjólf er að hann hefur verið að sigla á annarri skrúfunni sem er auðvitað ekki gott fyrir skipið af því að það er á yfirsnúningi fram og til baka frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar, mestmegnis, þegar þetta skip var sérstaklega hannað til að sigla frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja, sem er allt annar pakki í rauninni. Ég get ekki ímyndað mér það, án þess að vera nokkurs konar skipafræðingur, að þetta fari vel með Herjólf. Eins og ég kom inn á í andsvari mínu áðan þá er mikilvægt að það sé varaskip til staðar sem er staðsett í Vestmannaeyjahöfn til þess að grípa inn í ef eitthvað kemur upp á.

Þjóðvegur, jú, þetta er auðvitað þjóðvegur Vestmannaeyja. Þjóðvegurinn liggur ekki í loftinu af því að flugsamgöngur eru af skornum skammti þarna og það þarf eiginlega að særa þær fram á hverju einasta tímabili. Þannig að jú, það þyrfti að skilgreina þetta sem þjóðveg og Vestmannaeyingar hafa kallað eftir því. Ferjuáætlun, það er alveg greinilegt að samgönguáætlun tekur ekki nægjanlega utan um ferjur hérna á Íslandi og skipulagðar ferjuferðir. Það væri mögulega bara lausnin að gera einhvers konar ferjuáætlun sem myndi taka utan um Vestmannaeyjar, Grímsey, Breiðafjörð o.s.frv. Það væri eitthvað sem ég væri hlynnt að skoða.