157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:07]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans fyrra svar. Það hefur svo sem ekki farið fram hjá neinum, hvorki hér í þingsal né í almennri umfjöllun, að við Austfirðingar vorum að sjálfsögðu vonsviknir með þá breytingu á forgangsröðun sem gerð var. Mikil vonbrigði, við skulum orða það þannig. En það á að fara í Fljótagöng og þau eiga að fara inn í innviðafélagið. En þau geta ekki farið inn í innviðafélagið, ekki strax a.m.k. af því að þá er vægi þeirra sem A3-félags orðið of hátt. Nú kemur á daginn að það eru ekki til peningar eða eyrnamerktir peningar í Fljótagöng. Þau eru hvergi til nema bara hér á blaði. Peningurinn er ekki til.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum um þessi vinnubrögð og að við séum að ræða að hér eigi að fara að byrja að bora upp á nýtt og það vantar bara 20 milljarða, eða 18,5 ef þetta fer inn í innviðafélagið, eða 21,5 ef ríkið fer að framkvæma, og þeir eru bara ekki til?