samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir mjög góða ræðu. Það eru, eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason kom inn á, örugglega fáir í þessum sal sem þekkja þetta svið jafn vel og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson. Ég vil aðeins fara yfir aðgerðir eða nýframkvæmdir í kjördæminu okkar, Suðurkjördæmi. Mér finnst það velta mjög mikið á „ef“ og „hefði“; ef innviðafélagið kemur, ef Kjalarnesvegur fer, þá koma ákveðnar aðgerðir inn o.s.frv. Ég væri til í að heyra skoðun hv. þingmanns á því verkefni sem sveitarstjóri Rangárþings eystra hefur velt upp um að sveitarfélög geti sótt um fjármagn í ákveðinn pott til að hraða uppbyggingu, t.d. á stofn- og tengivegum, af því að það eru fáar aðgerðir hvað þá vegi varðar í þessari samgönguáætlun.