fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég verð nú að fagna sérstaklega þeim orðum sem komu fram í ræðu hv. þingmanns um að við þurfum að auka trúverðugleikann, að það sem við setjum fram sé trúverðugt og traust. Við minnkum væntingar um verðbólgu ef það sem við leggjum fram skapar traust til að byggja á. Það skiptir máli og ég fagna þeim orðum. Það er gott að ábyrgur málflutningur komi frá stjórnarandstöðunni því að stundum hefur það verið þannig að menn hafa sett sig á móti öllum tekjuöflunarleiðum, hvaðan sem þær koma, hvort sem ferðaþjónustan á í hlut eða annað, án þess að koma með eitthvað annað á móti um það hvaðan eigi þá að ná tekjunum. Menn hafa jafnvel viljað auka kostnað ríkisins án þess að setja fram hvaða annan kostnað eigi þá að skera niður. Þannig að ég fagna þessu. En ég er alveg sannfærður um að Fljótagöng koma og það verður byrjað innan tíðar á að framkvæma þau. Síðan mun það verða útfærsluatriði hvernig það verður.
Við fengum þetta frumvarp hér fyrr í vikunni og erum að skoða það. Ég hlakka til þess að fara yfir það með hv. þingmanni þannig að við fáum skýrari mynd af því hvernig þetta muni allt ganga fyrir sig. Það er talsverð vinna fram undan og ég hlakka til góðs samstarfs við hv. þingmann um það að þetta verði trúverðugt og gott plagg. Ég treysti á þingmenn stjórnarandstöðunnar til að gera þetta góða fjárlagafrumvarp að góðum fjárlögum fyrir árið 2027.