breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Stutta svarið er bara: Ekkert. Það er ekkert sem réttlætir þetta. Þarna er enn og aftur verið að seilast í vasa almennings. Nú er ekki verið að fara bakdyramegin eins og í því máli sem við vorum að ræða hér áðan heldur er farið beint framan að manni og framan að almenningi.
En hvernig verður umræðan, virðulegur forseti? Jú, hún verður þannig að hér kemur fólk sem styður ríkisstjórnina og þingmenn ríkisstjórnarflokkanna og tala eins og þetta sé ekki neitt mál. Heyrðu, þetta er bara 1 kr. og 1 kr. skiptir engu máli. Bíddu, það er 1 kr. ef þú keyrir 1 km. Fyrir flutningabílana, eins og ég fór inn á áðan — ég hef séð útreikninga á því að fyrir stóran trukk sem flytur vörurnar heim til mín í Skagafjörð, og vörurnar frá fyrirtækjunum í Skagafirði suður til Reykjavíkur, þá þýðir þetta um 700.000 kr. aukningu á ári á bíl. Hvert heldur hv. þingmaður og virðulegur forseti að þessi skattahækkun fari? (Forseti hringir.) Hver haldið þið að borgi þetta? (Forseti hringir.) Haldið þið að flutningabílstjórinn borgi þetta? Nei, hann mun ekki borga þetta. Það erum við sem búum úti á landi sem munum borga þetta. (Forseti hringir.) Fyrirtækin úti á landi munu borga þetta með því að hækka verð á flutningskostnaði sinnar vöru suður á markað.