breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir virkilega góða ræðu. Þingmanninum er einkar lagið að koma sínu máli þannig fyrir að ég held að margir skilji. Hún virðist vera í tengslum við málefnið þannig að hún nær að útskýra það vel. Tíminn líður svo hratt, en það sem mig langar að benda á og spyrja hv. þingmann um er þetta svokallaða framleiðniviðmið sem er tekið úr sambandi varðandi persónuafsláttinn og leggst á alla launþega. Þetta eru 3,1 milljarður sem ríkið ætlar að taka þarna inn, leggst á alla allar tekjutíundir. Hvað finnst þingmanninum um þetta? Telur hann þetta vera einhvern dulbúning, því að þetta fer ekki hátt í umræðunni, hvernig þetta smyrst jafnt og þétt yfir alla, (Forseti hringir.) þetta 1% sem er tekið af eða hækkar ekki eins og ætti að gera?