heilsuefling eldra fólks.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna og ég er algjörlega sammála því að heilsuefling er gríðarlega mikilvæg. Hún er mikilvæg í gegnum öll æviskeið og það er aldrei of seint að byrja hana og aldrei of snemmt. Ég þekki vinnu Janusar Guðlaugssonar afar vel og veit að þetta skiptir miklu máli. Það er heilmikil vinna er varðar heilsueflingu til staðar og þar er það embætti landlæknis sem vinnur í samstarfi við sveitarfélögin því að heilsan verður jú til þar sem fólk lifir og starfar. Þar er m.a. verkefni sem heitir „Heilsuefling eldri borgara“ og þar hefur heilmikið verið í gangi og af þessu tilefni hef ég óskað upplýsinga um það og er að bíða eftir upplýsingum því að þar hefur verið bætt í undanfarið.
Svo erum við líka auðvitað með heilsueflandi skóla og heilsueflandi vinnustaði og fleira. Þetta snýst um hluti sem eru frekar einfaldir: að hreyfa sig reglulega, að borða hollan mat, að leggja alúð við svefn, rækta andlegu hliðina og halda sig frá áfengi og tóbaki. Þetta er svona einfalda útgáfan af heilsueflingu og forvörnum. Síðan þetta með sundlaugina, þá hefur það ekki komið á mitt borð en ég hef heyrt ávæning af því máli og á reyndar fund með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á morgun og fæ þá frekari upplýsingar.