01.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)

97. mál, heiti á alsherjarstofnunum

Jón Sigurðsson:

Það hefir verið sagt í sögu, sem eg veit að háttv. flm. þessa frumv. þekkir, því hann er svo margfróður í þeim efnum, að einu sinni hafi verið maður, er ætlaði að smíða skip og byrjaði á neglunni og mér finst háttv. flutnm. þessa frumv. fara nokkuð svipað.

Eg lít svo á, að þar sem hér liggur nú fyrir þinginu frumv., sem höndlar um þetta mál, um ríkisrétt Íslands, þá sé óheppilegt að koma með þessi lög, áður en sú spurning er á enda kljáð, því það sýnist að minsta kosti þola þá bið þetta mál, þar sem fremur er að ræða um form en verklegt efni.

Þetta frumv. er fætt fyrir tímann, því áður en vér vitum, hvort vér getum fengið ríkisviðurkenningu, getur ekki verið að tala um slíkt. Eg held annars, að þetta sé reglulegt spaug hjá háttv. flutnm. og ekki sé annað hægt við frumv. að gera, en skera það strax niður, þegar búið er að hafa gaman af því.