24.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (800)

36. mál, sala á eign Garðakirkju

Flutn.m. (Bjðrn Kristjánsson):

Eins og hv. deildarmönnum mun kunnugt fékk Hafnarfjörður kaupstaðarréttindi fyrir nokkrum árum, og átti kaupstaðurinn þá enga lóð. Hún var öll eign Brydes og Garðaprestakalls. Nú hefir bærinn verið svo heppinn að fá keyptan þann hluta sem Brydesverzlun átti, en þó vantar mikið á að hann eigi alla lóðina undir kaupstaðnum, og hann á lítið land fyrir utan takmörk hans. Því er það, að bærinn hefir nú sótt um að fá keypta spildu af Garðaprestakalli. Land þetta er nálega eingöngu hraun og melar eins og sjá má af korti því er fylgir til athugunar fyrir hv. þingmenn. Eg skal geta þess að prófasturinn í Görðum hefir lagt eindregið með þessari sölu. Hann og bæjarstjórnin hafa komið sér saman um söluverðið. Sömuleiðis hefir málið verið borið undir biskup, og skal eg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp nokkrar línur úr bréfi hans

Þær eru svohljóðandi:

„Prófasturinn í Görðum hefir um all-langan undanfarinn tíma skýrt mér rækilega frá öllum málavöxtum við þessa sölu, og hefi eg munnlega látið uppi við hann að eg væri alveg samþ. kröfum hans fyrir hönd prestakallsins og síðar meir prestalaunasjóðs.“

Eins og sjá má, leggur biskup líka eindregið með sölunni. Allir aðilar hafa komið sér saman um að hæfilegt kaupverð á spildunni væri 52 þús. kr.

Auðvitað þarf þetta mál íhugunar, þar sem svo mörg skjöl fylgja, og verður tæplega afgreitt nefndarlaust. Vil eg því leyfa mér að stinga upp á að kosin verði 5 manna nefnd að umræðum loknum.