03.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
36. mál, sala á eign Garðakirkju
Framsögum. (Björn Kristjánsson):
Eg fyrir mitt leyti get ekki sagt, hvað stórt landið er, sem hér er farið fram á að selt sé, og efast um að nokkur geti sagt það; það hefir verið skoðað svo verðlítið, að það hefir ekki verið mælt. Það mætti ef til vill mæla það út eftir kortinu til 3. umr. Hvert graslendið er, sést á kortinu, og eru það að eins blettir hér og þar.
Annars er undarlegt að koma nú með mótmæli gegn frumv., þar sem nefndin hefir athugað það, og er öll á einu máli. Það er líka undarlegt að vera að appellera til stjórnarráðsins, þegar ráðherra er hér viðstaddur og getur gefið upplýsingar um málið.
Hér er um enga bygða jörð að ræða, að eins ein eyðijörð er á þessu svæði, nfl. Kaldársel, sem ekki hefir verið bygt í mörg ár.
Annars er óþarft að orðlengja um þetta. Eg vona að hv. þingd. verði við frv., þar sem nefnd 5 manna leggur eindregið með og ráðherra hefir ekki haft neitt á móti því ennþá.