16.07.1913
Efri deild: 10. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)
52. mál, sala á þjóðjörðinni Reykjum í Hrútafirði
Þórarinn Jónsson:
Eg hefi örlitlu að bæta við það, sem eg tók fram við fyrstu umræðu þessa máls.
Þó er eitt atriði, sem ýmsir háttv. þingm. hafa hreyft við mig, sem jeg vildi minnast á með fáeinum orðum. Það er um matið á jörðinni. Það hefur verið fundið að því, að matið á jörðinni væri of lágt; og er það því að svara, að hjer í frumv. er gert ráð fyrir því, að ráðherra veitist heimild til að selja jörð þessa eftir sömu reglum og aðrar þjóðjarðir, ef þessvegna ráðherranum þykir jörðin oflágt metin, þá getur hann sett upp verðið.
Þá vildi jeg ennfremur taka það fram, að ef einhverntíma kemur þarna upp verzlun, sem raunar engum dettur í hug að muni verða, þá eru undanskildar í sölunni yfir 30 engjadagsláttur kring um þennan hugsanlega verzlunarstað. Raunar hefur sýslunefndin alls ekki gert það með tilliti til hans, heldur með tilliti til sundskála er sýslan hefur þar.