21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)

3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913

Þórarinn Jónsson:

Aðeins örfáum orðum vildi jeg víkja að brtill. minni. Til þess, að jeg hef gert þessa brtill., liggja tvær ástæður. Hin fyrri er sú, að jeg hef viljað koma á samræmi á milli gjaldsins af póstbögglum og af öðrum vörutegundum. Samkvæmt vörugjaldslögunum nú á að greiða 30 aura af vefnaðarvöru. Það er því innan handar fyrir kaupmenn að panta þá vörutegund með póstum í 10 punda bögglum og þurfa þeir ekki að greiða nema 25 aura, eða 5 aurum minna, auk þess er þeir þurfa ekki að greiða uppskipunargjald. Mjer finst vera sjálfsagt, að gera hjer á samræmi.

Hin ástæðan er sú, að þessir póstböglar eru orðnir að hreinni plágu. Svo er það að minsta kosti á Norðurlandi, þar sem jeg þekki til. Það má heita, að þar panti nú nærfelt hver unglingur vörur frá útlöndum, mest frá Þýzkalandi. Eitt sinn komu t. d. í einu nær 20 tunnusekkir af póstböglum til Bönduóss, og það voru held jeg mest óþarfavörur, og svo er yfirleitt um þessar pöntuðu vörur, er koma í póstböglum, nema ef kaupmenn fara að nota sjer að panta þannig vefnaðarvöru. eins og jeg gat um áðan. Jeg skal geta þess, að jeg hef átt tal um þetta við fleiri póstafgreiðslumenn, og hafa þeir kvartað undan póstbögglamergðinni og vildu láta leggja jafnvel 1 krónu toll á hvern böggul. En þó ekki sje gengið svo langt, þá má úr þessu bæta nokkuð. Jeg sje, að það er komin fram brtill. um að gjaldið af hverjum póstbögli verði 30 aurar, er það þó nokkru nær, því þá er það sama gjaldið og af vefnaðarvöru; að eins losna menn þá við uppskipunargjaldið, sem þó altaf nemur nokkru:

Jeg sje ekki ástæðu til að ræða málið frekar, en vil skjóta þessu til háttv. deildar til athugunar. og vænti þess, að tillagan verði samþykt.