29.08.1913
Efri deild: 42. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

68. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða

Sigurður Stefánsson:

Mjer þykir vænt um að heyra, að háttv. nefnd muni fúslega taka þetta atriði til greina. Og það verður að aðgæta það, að kvöð þessi hvílir á landsdrotni, hvort sem hann hefur bygt kúgildin eða ekki, og stundum geta þau fallið niður. Jeg þekki t. d. eina bændakirkjueign með 14 kúgildum, sem hvergi eru til nema á pappírnum, og verður eigandinn að svara af þeim hálfum leigum samkvæmt hæstarjettardómi. Þessi kúgildi eru fallin niður fyrir langa löngu, án þess nokkur viti, hvað af þeim hefur orðið, en eigendur kirkjunnar verða samt að svara hálfum leigum af öllum þessum kúgildum. Og ósanngjarnt virðist að neyða landsdrotna til að taka til sín kúgildin, ef þeir telja sjer það skaða, og á það ekki sízt við, er um bændakirknaeigendur er að ræða, þar eð á þeim hvíla þessar lögkvaðir, sem jeg hef minzt á.

En jeg vona sem sagt, að háttv. nefnd taki þetta til athugunar.