06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Þórarinn Jónsson:

Það hefur mikið verið um það talað í dag, að það væri sjálfsögð kurteisisskylda við Frakka, að veita þeim undanþágu undan bannlögunum fyrir sendiræðismann sinn hjer. Mjer sýnist verði að líta á það mál þetta frá báðum hliðum. Mjer fyndist það vera kurteisisskylda hinna kurteisu Frakka, að segja við sendiræðismann sinn hjer á landi, að hann verði að beygja sig undir þau lög, sem landsins börn verða að lifa undir, meðan hann dvelur hjer Jeg þekki dæmi þess, að bannlögin okkar hafa komið allóþægilega niður á sumum löndum okkar. Um það bil, sem þau vorn á leiðinni, sagði bóndi einn við mig: Ef þessi lög komast á, verður mjer ekki vært hjer í landi; jeg verð að flýja land, því án víns get jeg ekki lifað. Hvernig geta nú Frakkar ætlazt til þess, að vjer gerum sendiræðismanni þeirra hærra undir höfði en íslenzka bóndanum ? Og hvernig getum vjer sjálfur staðið oss við að gera það?

Segja við bóndann okkar: Þú mátt fara af landi burt og þeir, sem þjer fylgja; fyrir ykkur gerum við enga undanþágu, en fyrir Frakka er það sjálfsagt.