09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)
120. mál, milliþinganefnd í slysfaramálum
Þórarinn Jónsson:
Háttv. flutningsm.: (G. B.) skaut því til mín, að jeg hefði við umræður um fjárlögin lítilsvirt tilfinningar manna. Þetta er mishermi. Hitt sagði jeg, að það væri ekki rjett, að vera að slá á tilfinningarstrengina, og reyna með því að hafa áhrif á háttv. deildarmenn og reyna að leiða þá til óskynsamlegra hluta; ekki þó svo að skilja, að jeg sje mjög hræddur um, að það muni hepnast.
Tillagan er í sjálfu sjer góð, en þó er jeg samdóma háttv. þm. Strand. (G. G.) um það, sem hann sagði um hana. En af því að hún er góð, þá er ekki rjett að fella hana, og mun jeg greiða atkvæði með henni.