09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (2307)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Stefánsson:

Það er neðri deild, sem fyrst og fremst hefur stofnað málinu í voða, þar sem hún hefir haft það svo lengi hjá sjer, svo að það er með öllu óforsvaranlegt um slíkt stórmál. Nefndin hjer í deildinni er og samsek neðri deild, þar sem hún hefur verið 5 daga að semja þetta nefndarálit, er semja mátti á 5 mínútum.