11.08.1914
Neðri deild: 40. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

120. mál, stjórnarskrá

Einar Jónsson:

Mér virðist þetta mál liggja þannig við, að það gæti gengið umræðulaust gegnum þingið — að menn segi annaðhvort já eða nei við því, hvort þeir vilji samþykkja stjórnarskrárbreytinguna eða ekki, sérstaklega þar sem engin breytingartillaga liggur fyrir. Sömuleiðis finst mér háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) hefði getað sparað sér þessa löngu ræðu sína um fyrirvarana, þangað til þeir kæmi á dagskrá. Það er óviðeigandi að vera að blanda þeim inn í þetta mál núna. Því er nú svo farið, að vér erum að vísu kosnir á þing vegna stjórnarskrármálsins, en um það verður ekkert sagt annað en það, sem áður er margsagt og margprentað. Enda hygg eg að þjóðin hafi ekki ætlast til annars en menn segði annaðhvort já eða nei, umræðulaust.