03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

51. mál, vegir

Einar Jónsson :

Eg veit ekki hvort meint eru til mín þessi orð um niðurskurðarhug í vegafrumvörpunum. Eg sagði það eitt, að leysa bæri úr öllum þessum málum með jafnri sanngirni. Og eg get ekki séð það, að fremur sé ástæða til þess að landið kosti veginn milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur en veginn austur í sýslur. Það hefir verið margsýnt fram á, að austurveginn nota menn úr öðrum héruðum jafnmikið eða meira en héraðsbúar, en þennan veg nota engir aðrir. Og það geta engar umræður sannfært mig um það, að ekki eigi hið sama að ganga yfir alla vegina. Raunar getur það verið dálítil ástæða, að Vífilsstaðir nota þennan veg talsvert, og Heilsuhælið er í þarfir alls landsins, en þessi ástæða er ekki veigameiri en margar af þeim, sem getið var um í umræðunum um austanveginn, svo að eg álít óþarft að gera hér undantekningu. Réttast hefði mér virst, að þessi vegafrumvörp hefði öll verið samþykt, en fyrst svo var ekki, þá virðist mér öll sanngirni mæla með því, að þau fari öll sömu leiðina.