05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

51. mál, vegir

Einar Jónsson:

Háttv. flutningsmaður sagði að það lægi fyrir, að viðkomandi sýslufélag neiti að halda þessum vegi við. Það gæti nú fleiri gert, ef þeim sýndist. Þegar við hreyfðum þeirri ósk, nokkrir þingmenn, að landssjóður tæki að sér viðhaldið á veginum frá Reykjavík til Ægissíðu, þá var þess getið, að eitthvað svipað gæti komið fyrir um hann. Reyndar ekki það, að sýslufélögin neituðu að halda honum við, heldur að svo gæti farið, að þau hefði engar ástæður til þess. En þegar þetta er nú reglan, að héruðin kosta viðhaldið, þá þýðir ekki að hræða menn með því, að þau neiti því. Vegirnir verða að vera háðir sömu reglum, í hvaða kanti landsins sem þeir liggja. Ef hv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) heldur að hann hræði menn með þessari neitun, þá skil eg ekki hvað hann er að fara. Hún væri lagabrot og ekkert annað, ef þingið fæst ekki til að leysa viðkomandi hérað undan viðhaldsskyldunni.