25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í B-deild Alþingistíðinda. (828)
34. mál, friðun fugla og eggja
Einar Jónsson:
Síðan eg talaði seinast hefir skoðun mín á þessu máli breyzt að nokkru leyti. Eg hafði þá trú, að háttv. þm. Dal. (B. J.) hefði sagt satt, þegar hann skýrði mér frá, hvílíkur vágestur örninn væri Dalamönnum, en nú hefir það komið í ljós við umræðurnar, að háttv. þm. hefir að eins flutt þetta frumvarp til þess að fá tækifæri til að skemta þingmönnum með kringiyrðum, dómadagsskrítlum og glensi, en ekki af því, að málið væri honum alvöru- eða áhugamál. Þrátt fyrir þetta mun eg þó greiða frumv. atkvæði eins og við 2. umr., því að eg álít frumvarpið þarft, þrátt fyrir það, að háttv. þm. Dal. (B. J.) lítur svona á það.
Þá skal eg snúa mér að vini mínum háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.). Hann sagði, að það væri ósköp að heyra mann halda öðru eins fram og því, að útrýma bæri rándýrum, sem spilti eignum manna. Eg get með sama rétti sagt, að það er óskaplegt að heyra önnur eins orð og þessi í þingsalnum. Og eg býst ekki við öðru, en háttv. þm. mundi reyna að verja sig, ef einhver með rangindum ætlaði að hirða sýslumannslaunin hans. En alveg sama máli gegnir um bóndann og lömbin. Hann verður að verja þau til þess að þau geti orðið að fullorðnum kindum, sem honum verði að gagni. Hann verður að byrja á lömbunum. Eg hefi að minsta kosti aldrei heyrt — það getur verið, að háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) hafi heyrt það — að nokkur maður hafi fengið fullorðna kind úr dauðu lambi. Það verður einmitt að koma í veg fyrir það, að örninn leggist á lömbin. Nú hefir háttv. Dal. (B. J.) sagt mér, að örninn hafi tekið lömb í Dalasýslu. Það er nú auðséð, að þetta er honum ekkert alvörumál, en vegna þess, að eg hygg þetta satt vera, þá mun eg þó greiða atkvæði með frumv., þrátt fyrir alt alvöruleysi og miður heppilegar fyndnistilraunir háttv. flutningsmanns (B. J.). Þær hafa miðað til þess eins, að spilla fyrir málinu, en þó vænti eg þess, að þær verði því ekki að falli.