25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

121. mál, löggilding verslunarstaðar á Mýramel

Kristinn Daníelsson:

Þessi staður liggur norðanvert við Dýrafjörð, í Mýrahreppi. Þar var áður talsverð „trafik“, meðan hvalveiðamenn voru vestra, en nú hafa þær veiðistöðvar verið lagðar niður. Hafa sveitarbúar hugsað sjer, að með því að hjer er um góða höfn að ræða, svipaða höfninni á Þingeyri, þá geti hjeraðinu orðið hagur og frami að því að hjer yrði rekin verslun. Mjer hefir að vísu ekki verið falið að flytja þetta mál, en með því að jeg er gagnkunnugur þessum slóðum, hefir mjer þótt rjett að gefa þessar upplýsingar. Vænti jeg, að þetta frv. sæti sömu vingjarnlegum viðtökum sem önnur samskonar frv.