20.09.1919
Efri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)

152. mál, vörutollur

Kristinn Daníelsson:

Mjer sýnist það vera tæplega sannað, að það sje brýn þörf að auka frekar við tekjur ríkissjóðs en gert hefir verið á þessu þingi, og mjer finst því rjett, að þetta atriði væri athugað nánar í nefnd, enda er annað mál á dagskránni í raun rjettri sama málið og þetta. Og þó þar sje komið nefndarálit, er ekkert vikið að þessari hlið málsins, og ætti nefndin því að geta gefið ýmsar skýringar, svo hægara væri að glöggva sig á frv.