30.07.1919
Efri deild: 18. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (485)

28. mál, hæstiréttur

Kristinn Daníelsson:

Jeg geng að því vísu, að allir taki undir með frsm. (Jóh. Jóh.), að sjálfsagt sje, að æðsta dómsvald verði flutt inn í landið, eins og nú er komið málum vorum.

En jeg álít, að hjer skifti svo miklu máli, að vel sje frá gengið, að betra væri að gefa sjer tíma til að athuga öll atriði sem vandlegast. með því t. d. að fresta málinu til næsta þings, því ýmislegt í frv. þessu er mjög þýðingarmikið, t. d. það, hvort hafa skuli 2 dómstig eða fleiri.

Það er auðvitað, að við leikmenn í þessum efnum höfum harla lítið vit á einstökum atriðum þessa máls. En eigi að síður er ætlast til þess, að við greiðum atkv. um þau, svo æskilegast væri, að allir þingmenn gætu sett sig inn í málið. Jeg hefi reynt að kynna mjer málið, en hefi ekki haft tíma til að athuga það eins vel og jeg hefði viljað.

Jeg get hugsað mjer, að þeir, sem sitja á næsta þingi, væru betur undir það búnir að ráða málinu til lykta.

Enginn skilji orð mín svo, að jeg vilji leggja stein í götu þessa máls, en því neita jeg ekki, að betra hefði verið að átta sig á máli þessu, ef þess hefði verið kostur, að kynnast öllum skjölum þess, áður en það gekk til þessarar umr. Að vísu má sjá á nál., að mismunandi skoðanir hafa komið fram, en þar sjest eigi, hverjar þær eru. Nú hafa menn heyrt, að þær eru frá yfirdóminum, og skoðanamismunurinn er um það, hvort heppilegra sje að hafa skriflega eða munnlega málfærslu. Jeg vil leiða minn hest frá að fella úrskurð um það, hvort sje heppilegra, en alment skoðað blandast mjer ekki hugur um, að skriflegur frágangur verði vandaðri en munnlegur. Þarf ekki annað en benda á hjer á þingi. Hver maður, sem vill halda vandaða ræðu, myndi heldur skrifa hana niður en flytja bana ,,blaðalaust“.

Hv. frsm. (Jóh. Jóh.) benti á undanþáguna í brtt. við 53. gr. og kallaði það málamiðlun; en satt að segja sje jeg ekki að svo sje.

Að vísu hefir undantekningin verið framlengd um 1 ár, en tala málanna, sem hún á að ná til, aftur einskorðuð. Eftir 53. gr. frv. gat jafnvel meiri hluti málanna sætt skriflegri meðferð.

Skal jeg ekki fjölyrða meira um mál þetta, en þætti vænt um að vera gefinn kostur á að kynnast skjölum þess, áður en það gengur til 3. umr.