04.08.1919
Efri deild: 21. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (493)
28. mál, hæstiréttur
Kristinn Daníelsson:
Mjer er ekki neitt fast í hendi um brtt. á þgskj. 251, og vil því taka aftur 1. brtt. þar, þótt jeg sje alls ekki sannfærður um, að rök hv. frsm. um hana sjeu rjett.
Um önnur atriði í máli þessu, er mjer þykja máli skifta hefi jeg ekki treyst mjer til að bera fram neinar brtt., þar sem allir lögfræðingar þingsins standa öndverðir gegn mjer, nema einn hv. þm., er því miður hefir ekki átt kost á að taka þátt í meðferð málsins.