14.02.1920
Efri deild: 4. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (1009)
6. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Halldór Steinsson:
Þó að frv. ætti að rjettu lagi að fara í allsherjarnefnd, þá leyfi jeg mjer að leggja það til, að því verði vísað til mentamálanefndar, sökum þess, að allsherjarnefnd er ávalt um of störfum hlaðin, en mentamálanefnd hefir á hinn bóginn litlu að sinna.