26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

Fastanefndir fylltar

forseti:

Um leið og Pjetur Jónsson, þm. S.-Þ., var skipaður atvinnumálaráðherra, hefir hann gengið úr nefndum þeim, er hann var kosinn í á öndverðu þingi, og hefir nú flokkur sá, er hann telst til, nefnt til í sæti hans í fjárveitinganefnd

Magnús Kristjánsson, þm. Ak.

Er aðferð þessi, um fyllingu nefnda orðin föst þingvenja, og tel jeg því eigi þurfa að bera málið undir hv. deild.