28.02.1920
Efri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Halldór Steinsson:

Mjer finst skylt að gera grein fyrir, af hverju atkvæði mitt fellur nú öðruvísi en áður í þessu máli. Jeg var þá með því, að Reykjavík fengi 3 þm. til viðbótar. Það var samþykt hjer í deildinni, en fjell í Nd. með 13 móti 12 atkv. Nú er það ljóst, að ef þessi deild færi að breyta þessu á ný, þá mundi það leiða til þess, að neðri deild feldi frv.

Jeg greiði því atkv. á móti till. hv. þm. Vestm. (K. E.), tel betra fyrir Reykjavík að fá nú 2 þingmenn til viðbótar en engan, betri hálfan rjett en engan.