10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (30)
Rannsókn kjörbréfa
Aldursforseti (S. J.):
Mótmælum hefir verið hreyft á móti því að bera tillöguna upp, en þar sem engin önnur till., hvorki breytingartillaga nje sjálfstæð, hefir komið fram, álít jeg rjett að bera hana upp.