27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í C-deild Alþingistíðinda. (903)
41. mál, Íslensk peningaslátta
Halldór Steinsson:
Jeg verð að álíta, að málið sje lítið undirbúið, og ætla því að koma fram með rökstudda dagskrá, sem jeg skal lesa upp með leyfi hæstv. forseta:
„Í því trausti, að ríkisstjórnin afli upplýsinga um, hvort tiltækilegt sje að setja á stofn sjerstaka, íslenska peningasláttu, og leggi málið síðan fyrir næsta Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“