23.04.1921
Neðri deild: 50. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)
41. mál, fjárlög 1922
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Jeg þarf ekki neinu að svara, sem fram hefir komið síðan jeg settist niður, því að hæstv. atvrh. (P. J.) talaði ekki þann veg, að jeg þess vegna þyrfti að standa upp í þriðja sinn.
En það er háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem knýr mig til þess. Hann hefir einu sinni enn sýnt, til hvers hann er kominn á þing. Og ef Sunnmýlingar lesa ræðu hans orðrjetta í Alþingistíðindunum, eins og hann flutti hana og skrifararnir heyrðu hana, þá þykist jeg vita, að hann hafi ekki brugðist vonum þeirra manna, er fólu honum að fara með umboð sitt á þingi. En þá má hv. þm. (Sv. Ó.) ekki umskrifa ræðu þessa, eins og allar aðrar ræður, er hann hefir fluttar á þingi hjer, því að kunnugt er það orðið, að hann hefir látið prenta í þingtíðindunum orð eftir sjer, sem hann hefir aldrei sagt, og margra dálka ræður, er hann hefir aldrei flutt í þinghelginni.
Ef háttv. þm. (Sv. Ó.) er svo skilningslítill, að halda, að þm. Dalamanna sje einn að leggjast á móti honum, þá segi jeg honum það, að þm. Dalamanna hefir ekki áskilið sjer neitt sjeratkvæði um það, er hann mælir fyrir hönd sjö manna nefndar þeirrar, er fól honum framsöguna. Þetta hefði hv. þm. S.-M. (Sv. Ó.) átt að geta snuðrað uppi, ef hann er jafn grensmoginn og hundurinn, sem hann var að tala um.
En hann mun ekki hafa fengið vitið í grenjunum, nje heilindi þau, er hann mælir af, heldur mun hvorttveggja vera keypt á hvalaveiðastöðinni í Mjóafirði. Þaðan mun honum og kominn gorgeir sá, er hann telur sig aldrei hafa unnið fyrir launum hins opinbera. Enda mun það og satt vera, að hann hafi aldrei unnið ærlegt handtak fyrir þjóðina, heldur sjálfan sig, og trúi jeg því vel, að slíkur maður, sem hann er að innræti, hafi sjeð um sig.
Væri og eftir öðru hátterni hans, ef hann á langa þingsetu fyrir höndum, að hann veitti sjálfum sjer rífleg heiðurslaun fyrir umboðsmenskuna austur þar, svo þjóðin sæi hvílíkt fágæti hann væri.
Annars sýnir hann hjer í öllu sínu ði, að enginn er líklegri til þess að bana hreppstjórunum hans en sjálfur hann. Hann mælir ekki með einni einustu fjárbeiðni til annara kjördæma en sjálfs síns, en hamast í móti mörgum. Illvígur við alla og illgjarn í allra garð. Hann leyfir sjer að koma með getsakir um sendimann ríkisins suður á Spáni, af þeim ástæðum, að hann, þm. (Sv. Ó.), hefir ekki í sinni æfilöngu rauðmagaverslun fengið brjef frá honum. Sýnir þetta, hversu illviljaður hann er mönnum og málefnum.
Og vil jeg, áður en jeg lík máli mínu, endurtaka það, er jeg mælti í upphafi, að ef Sunnmýlingar sjá þessa ræðu hans óbrjálaða í Alþt. og að hann umskrifi hana ekki öðruvísi en þingskrifararnir heyrðu hana, þá mun hann vafalaust á sínum tíma fá fullar þakkir kjósenda sinna fyrir framhleypnina.