11.05.1921
Efri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)
41. mál, fjárlög 1922
Frsm. fjhn. (Sigurður Eggerz):
Jeg skal geta þess, að fjhn. Ed. átti tal við Nd.-nefndina um fjárhagsáætlunina, og voru skipaðir 2 menn úr þeirri nefnd til þess að athuga hana í samráði við Ed.- nefndina. Og þar sem niðurstaðan hefir orðið nær hin sama og við 2. umr., sje jeg ekki ástæðu til þess að endurtaka það, sem jeg sagði um fjárhagsáætlunina þá. Leyfi jeg mjer aðeins að mæla með, að brtt. nefndarinnar verði samþ.