09.04.1921
Efri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)
1. mál, hlutafélög
Frsm. (Sigurður Eggerz):
Jeg þarf ekki að tala langt mál. Þegar mál þetta var til 2. umr. hjer í deildinni, bjóst jeg við að bera fram brtt. við 4. gr. frv. við þessa umr., þar sem ákveðið væri, að hver stofnandi hlutafjelags legði fram ákveðna lágmarksupphæð. Nefndin hefir nú tekið þetta atriði til athugunar og álítur það óþarft. Henni virðist ekki ástæða til að gera þessa kröfu til stofnenda hlutafjelaga. Þótt það væri gert að skilyrði, að hver hluthafi legði fram t. d. 100 kr. að minsta kosti, til þess að teljast hluthafi, þá væri ávalt hægt að fara í kring um það ákvæði, og það mundi ekki koma að haldi. Nefndin hefir því fallið frá brtt. um þetta. Jeg skal og taka það fram, að þótt nefndin telji rjettara að taka út úr þessu frv. gjaldaákvæðin og færa þau inn í aukatekjulögin, en þar á að safna öllum aukatekjum, þá hefir nefndin þó fallið frá þessu, af því hún veit, að fjárhagsnefnd mun leggja til, að engar breytingar verði gerðar á aukatekjulögunum.
Að öðru leyti er jeg þakklátur háttv. deild fyrir hvað vel hún hefir tekið þessu frumvarpi.