11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (2093)
94. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Frsm. minni hl. (Pjetur Ottesen):
Við sjávarútvegsnefndarmenn leiddum svo rækilega saman hesta okkar við 2. umr. þessa máls, að ekki mun þörf að bæta þar neinu verulegu við, því að ekkert nýtt mun fram koma. Jeg get lýst því yfir, að breyting háttv. Ed. á frv. hefir ekkert laðað okkur minni hluta mennina að frv. Dagskrá þeirri, sem fram er komin frá háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) munum við greiða atkvæði.