19.04.1921
Neðri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (2330)
100. mál, Ríkisveðbanki Íslands
Bjarni Jónsson:
Háttv. allsherjarþm., N.-Ísf. (S. St.) var reiður og uppbelgdur í þessu máli. Hann kvað það tísku, að stórmál fengju að hvíla sig hjá stjórninni milli þinga, og er það að skapi hans að fresta öllu, sem til framfara horfir, í lengstu lög. En háttv. þm. (S. St.) láðist að geta þess, að flest þessi frv. hafa komið óbreytt frá stjórninni, enda hafa þau verið send þangað með líkum hug og hv. þm. (S. St.) ber til þessa máls. Háttv. þingmaður fræðir menn á því, að hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.) hafi ekki sett sig inn í þetta mál, en þó að svo sje, ef til vill, ástatt um hann, þá á það á engan hátt við alla stjórnina, enda hefir hún haft nægilegt tækifæri til að kynna sjer málið. Hæstv. fjármálaráðherra (M. G.) hefir t. d. komið með allítarlega brtt. við frv., og sýnir það, að ekki er hann málinu með öllu ókunnugur. Það gæti komið til mála að fresta þessu máli, ef það væri illa undirbúið og eitthvað væri að því unnið milli þinga. En undirbúning hefir það Hlotið ákjósanlegan, og það er brent fyrir, að hjer á landi sje unnið að málum milli þinga. Þau eru látin liggja til næsta þings, og oftast lengur, og þegar þau koma fram að lokum eru þau með öllu óbreytt. Dagskrá þessa háttv. þingmanns (S. St.) bætir því ekkert úr undirbúningi málsins, enda getur hún varla verið komin fram í því skyni.
Þá sagði háttv. þm. (S. St.), að bankinn yrði alveg peningalaus og brjefin seldust ekki. Þetta sagði háttv. þm., sem hvorki ætlar að standa blár eða bleikur frammi fyrir kjósendum. Þetta vinnur hann að því að efla og styrkja lánstraust landsins. Hann tímir ekki að sjá af örfáum krónum til þess að halda lífinu í ungum, efnilegum mönnum, sem geta orðið þjóðinni til gagns eða sóma síðarmeir. En þó kallar hann út yfir veröldina, að landið sje svo illa statt, að brjef þess seljist ekki og alt sje hjer að fara í hundana. Og þessi málsvari landbúnaðarins stendur hjer bæði blár og bleikur frammi fyrir þingheimi og lýsir vantrausti sínu á þessum atvinnuvegi. Jeg vona, að háttv. kjósendur fari að skilja sparnaðarræður og bölsýnismas þessa háttv. vinar þeirra. Nú hefir hann snúið broddinum að sjálfum þeim, og mega þeir þá finna velvild hans.
Að endingu vildi jeg ráða háttv. þingmanni til að hafa dagskrár sínar færri, en rökstyðja þær betur.