03.05.1921
Efri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2239 í B-deild Alþingistíðinda. (2387)
111. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Jeg tók ekki eftir því, að þetta frv. var á dagskrá, og hefi því ekki búið mig undir neina framsögu, enda býst jeg ekki við, að þurfi langa ræðu.
Eins og háttv. þdm. er kunnugt, þá er nú svo háttað tekjum sýslusjóða, að þær eru að mestu leyti greiddar úr sveitarsjóðum og jafnað niður á þá að 1/3 eftir tölu verkfærra karlmanna, en að 2/3 eftir samanlagðri tölu lausafjár og ábúðarhundraða.
Nú er litið svo á, að frv. það um fasteignaskatt, sem nú liggur hjer fyrir háttv. deild, kippi, ef samþykt verður, grundvellinum undan þessari niðurjöfnun. Því er hjer tekin upp önnur regla, sú, að jafna gjaldinu niður að 1/3 eftir tölu verkfærra karlmanna, eins og áður, að 1/3 eftir skattamati fasteigna og að 1/3 eftir samanlagðri fjárhæð skuldlausrar eignar og tekna af eign og atvinnu í hverjum hreppi fyrir sig.
Þetta frv. stendur þannig í sambandi við frv. um eignar- og tekjuskatt, og væri því viðkunnanlegra, að það kæmi ekki til 3. umræðu fyr en betur sjest, hvað um það verður.