13.05.1921
Neðri deild: 69. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2412 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Bjarni Jónsson:

Jeg furða mig ekkert á því að heyra svör hæstv. fjrh. (M. G.). Jeg bar þetta frv. ekki fram sem stjórnarandstæðingur, heldur vegna þess, að jeg áleit það nauðsyn. Jeg hefi aldrei verið stjórnarandstæðingur á þann hátt, að jeg vildi svala mjer á stjórninni til óhags fyrir landsmenn.

Í Íslandsbankafrv. verður það tekið fram, hvað mikið og hvernig stjórnin má veita Íslandsbanka lán. En það er á valdi hæstv. stjórnar, hvað hún lánar Landsbankanum.

Frv. mitt skyldar ekki stjórnina til að taka alt lánið. Ef hún álítur það betra, getur hún látið bankana taka lán sjálfa, en tekið ábyrgð fyrir þá.

Jeg sagði í fyrri ræðu minni, að þó það yrði heimilað með lögum, að ríkið kaupi hluti í Íslandsbanka, þá yrði það ekki gert fyr en reiknað hefði verið út, hvers virði hlutirnir væru. Þetta gæti tekið alllangan tíma, svo bankinn þyrfti að fá fje áður, annaðhvort út á eigið lánstraust eða frá stjórninni. Það fer vitanlega alt eftir viðburðanna rás, og þingið á ekki að binda stjórnina svo, að hún geti ekki gert það, sem henni þykir hyggilegast.

Og auðvitað liggur mjer ekki á, ef hæstv. stjórn liggur ekkert á.