15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (27)
Rannsókn kjörbréfa
Bjarni Jónsson:
Það kom undarlega við hjá háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.), er hann sagðist hafa sannfærst af hlut, sem hann gat alls ekki sannfærst af. Stjórnarskráin var lögð fyrir tvö þing. Eftir fyrra þingið fór ráðherra með hana til konungs, og því næst var hún lögð fyrir næsta þing. Það var vitanlegt, að hún yrði staðfest. Einasti möguleikinn fyrir því, að svo yrði ekki, var sá, að konungaskifti yrðu, og að sá konungur, sem á eftir kæmi, teldi sig ekki bundinn af staðfesting fyrirrennara síns. Jeg hygg, að engin skynsöm ástæða geri ráð fyrir slíku, enda var slík ástæða þá fyrst fundin upp, þegar á henni þurfti að halda til skálkaskjóls. Ekki nema það bara, að halda að nefndin hefði bundið sig við þetta. Jeg tel það móðgun við mig, að háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) skuli hafa snúist á svo mjóum prjóni.