09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í C-deild Alþingistíðinda. (2774)
83. mál, stofnun dócentsembættis
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Það getur vel verið að það sje ekki heppilegt, að fjárveitinganefnd með stjórninni ráði fjármálum til lykta sem þessu. Þó er sú þingvenja gömul og sá siður er til, að nefndir haga sjer ekki eins og sjálft fjárveitingarvaldið. Þó fyrirskipa þingsköp, að nefndir skuli spyrja fjvn. til ráða um fjárveitingar sínar. En á þessu þingi hafa þær ekki gert það, og væri þm. nær að halda lög en að víta sjálfsögð verk. Verst hefir þó verið ein nefnd, sem hv. þm. Borgf. (P. O.) er í, og er þaðan sjerstakt dæmi, er heimilað var fje í forboði fjvn., alt að hálfri miljón.
En hjer er það fjvn., sem gefur heimild til stjórnarinnar, er hún fór eftir, af því að ekki varð hjá því komist, þar sem það bar svo bráðan að.
Það var rjett hjá hæstv. forsrh. (J. M.), að fje var veitt í fjárlögunum, en það var ónóg til að lifa af því, og annaðhvort varð maðurinn þá að hætta við starfið og flýja á náðir útlendra ríkja, eða fara eftir till. hæstv. forsætisráðh., og meiri hl. nefndarinnar var kunnugt um, að þessi ungi maður var duglegur og áhugasamur um sína vísindagrein.
Hann hefir samið merkilegt rit í samanburðarmálfræði. Það hefir lítið verið dæmt hjer, en jeg hefi sjeð það í blaðadómum erlendum, að engin ritverk eru talin jafnvandasöm, og 4 eða 5 sjerfróðir vísindamenn, bæði í Þýskalandi og Hollandi, telja bókina mjög merkilega gott verk.
Það veitti ekki af að forða hv. þm. frá því að binda svona mann við háskólann, þar sem tilfinnanlega vantar kenslukrafta í íslenskum fræðum, — málfræði og íslenskri tungu, og náskyldum málum, bæði þýsku og öðrum skyldum norrænu.
Og þessi maður er sjerlega fróður í gotnesku og engilsaxnesku. Allir eru sammála um það, að ef háskólinn hjer á að vinna sjer veg, þá verður að leggja áherslu á íslensk fræði og fornnorræn, og ætti að vera deild fyrir hverja sjerstaka fræðigrein. Þá ætti það að geta orðið, að Háskóli Íslands yrði fremsti háskólinn í þessum fræðum, svo menn sæktu til hans alstaðar að úr heiminum. En þá yrði að kosta meira til hans og knýta við skólann mannvali áhugasamra og efnilegra vísindamanna.
En menn geta víst seint skilið þau sannindi, og það er reyndar nýtt stafróf, því að annars hefði ekki að undanförnu orðið að búa undir því, að ekki hefir verið tímt að fá næga krafta til skólans, síðan háskólinn var stofnaður. Það hefir ekki verið álitið rjettlátt að veita lífsuppeldi þeim snillingum, er verja tíma sínum til að skara fram úr í listum og vísindum. Þegar þeir svo eru búnir að verja 15–20 árum æfi sinnar til undirbúnings, þá gæti jeg hugsað, að þeir væru farnir að eldast, er það legst í þessa hv. deild að fara nú að veita þeim laun, og þá með sama hætti og svo mýmargar aðrar fjárveitingar hafa gengið í gegnum hana, eða með sama hætti og þessi fjárauka veiting, og vona jeg, að þessi fái þá að fylgjast með.