09.05.1921
Efri deild: 65. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (2810)

70. mál, kosningaréttur og kjörgengi til bæjarstjórnar og sveitarstjórnar

Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):

Allsherjarnefnd hefir gert 3 brtt. við þetta frv., en um 1. brtt. er nefndin ekki öll sammála. Hv. 2. landsk. þm. (S. E.) vill samþ. 1. málsgr. 1. gr. eins og hún kom frá Nd., þar sem hann telur ekki rjett að svifta menn kosningarrjetti og kjörgengi, þótt þeir hafi þegið sveitarstyrk. Meiri hl. nefndarinnar vill aftur á móti ekki ganga hjer framar en gert er um kosningarrjett og kjörgengi til Alþingis. Því tók hann hjer upp samskonar ákvæði og er í stjórnarskránni.

Um 2. brtt. er nefndin öll sammála. Nefndinni þótti nokkurt ósamræmi í orðalaginu, og því hefir hún orðað þessa málsgr. eins og gert er í stjórnarskránni.

3. brtt., sem á við 2. gr., stafar af því, að hv. Nd., hefir sjest yfir það, að þau lög, sem þar eru nefnd, hafa áður verið úr gildi feld. Er því óþarft að gera það aftur.