25.04.1921
Neðri deild: 51. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (3252)
109. mál, atkvæðagreiðsla fjarstaddra manna við alþingiskosningar
Flm. (Bjarni Jónsson):
Jeg tala fyrir tveim frv. í einu, þessu og hinu næsta. Ástæðan til, að frv. þessi eru fram borin, stendur skráð neðan á þskj. og er sú, að eins og lögum er nú háttað, geta kjósendur ekki notið kosningarrjettar síns.
Vil jeg að frv. verði vísað til háttv. allshn., því hana þekki jeg að góðu einu af undanfarinni reynslu.