19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í D-deild Alþingistíðinda. (3816)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Bjarni Jónsson:
Mjer skilst, að engin mótmæli hafi komið fram gegn því, að rjett sje bókað um það, er gerðist á fundi þeim, sem um ræðir. En það er nýstárlegast, og ekki þekt áður, að nokkrir deildarmenn hafa í óleyfi tekið gerðabókina og ritað í hana óvirðuleg orð um hæstv. forseta. Þetta er þingsafglöpun, sem engin refsing er við lögð í þingsköpum, þar sem enginn hefir hugsað, að slíkt gæti átt sjer stað. Vil jeg skjóta því til forseta, að hann láti skrifstofustjóra geyma betur bókarinnar, svo að óviðkomandi mönnum haldist ekki sú ósvinna uppi að hnupla henni til þess að klóra í hana það, sem þeim dettur í hug.